Í samstarfi við Háskólann á Akureyri vinnur Íslandsþari að þróunarverkefnum sem miða að því að fullnýta stórþara og skapa verðmæti úr þessari mikilvægu náttúruauðlind. Samstarfið skapar einnig tækifæri til þátttöku nemenda skólans á sviðum eins og líftækni, sjávarútvegi og viðskiptum.
Matís er íslenskt rannsóknar- og nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að öryggi, gæðum og sjálfbærri nýtingu matvæla með vísindalegum aðferðum.
Matís hefur þegar sinnt mikilvægu hlutverki í efnagreiningum á þaranum og mun einnig taka þátt í nýju verkefni styrktu af Tækniþróunarsjóði á árunum 2025–2027.
Tækniþróunarsjóður Rannísar veitir Íslandsþara styrk til að þróa nýja og sjálfbæra aðferð til einangrunar á fucoidan úr stórþara. Verkefnið byggir á nýtingu hliðarafurða og hefur mikil tækifæri til verðmætasköpunar, nýrrar þekkingar og aukinna útflutningstekna.
Sóknaráætlun Norðurlands eystra hefur stutt við Íslandsþara með styrkjum í tveimur nýsköpunarverkefnum. Fyrra verkefnið, sem fór fram árið 2024, snerist um þróun á framleiðsluaðferð á lífvirkum þaraútdrætti. Árið 2025 veitti Sóknaráætlunin svo stuðning við verkefni sem miðar að því að kanna framleiðslu og nýtingarmöguleika fucoidans, sem er lífvirk fjölsykra sem fyrirfinnst í brúnþörungum.