Íslandsþari hefur verið úthlutað 2.400 m² lóð á Suðurgarði á Húsavík þar sem fyrirhugað er að reisa aðstöðu fyrir þörungavinnslu, með möguleika á stækkun upp í 4.500 m² Svæðið býður upp á mjög gott aðgengi að jarðhita, sem nýtist sérstaklega vel við þurrkun og vinnslu sjávargróðurs. Þessi staðsetning styður við markmið okkar um umhverfisvæna og hagkvæma framleiðslu, og er mikilvægur liður í áframhaldandi þróun og starfsemi fyrirtækisins.